Greining á útgjöldum
Alls námu heildarútgjöld (rekstur og fjárfesting) þeirra málaflokka sem heilbrigðisráðherra ber ábyrgð á 310,2 ma.kr. á árinu 2022 en fjárheimild ársins gerði ráð fyrir 356,5 ma.kr. Endanleg útkoma reyndist því í jafnvægi.
Rekstur
Rekstrarútgjöld málaflokka heilbrigðisráðuneytisins námu 295,8 ma.kr. á árinu 2022 og eru almennt innan heimilda. Tilefni er til að fjalla frekar um frávik þriggja málaflokka. Útgjöld málaflokks 23.30 Erlend sjúkrahúsþjónusta eru 28,6% umfram fjárheimild. Undir málaflokkinn falla brýn meðferð erlendis og veikindi og slys erlendis. Hvort tveggja eru liðir sem erfitt er að spá fyrir um og einstök tilfelli geta haft mikil áhrif á kostnað innan ársins. Útgjöld málaflokks 25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými eru 11,9% innan heimilda. Frávik stafa af töfum á byggingu hjúkrunarheimila sem eru á framkvæmdaáætlun. Útgjöld málaflokks 29.60 Bætur vegna veikinda og slysa eru 21,7% innan heimilda og eru ástæður frávika þær að fjárheimildir voru auknar í kjölfar breytinga á lögum um slysatryggingar sem tóku gildi í ársbyrjun 2022. Málsmeðferðartími hefur lengst á árinu samhliða fjölgun umsókna og ekki tekist að afgreiða allar umsóknir innan ársins.
Fjárfestingar
Til fjárfestinga var varið 14,4 ma.kr. Stærstur hluti fjárfestingar var í málaflokki 23.10 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta vegna nýbygginga við Hringbraut eða 9,7 ma.kr. Á árinu voru um 25,9 ma.kr. til ráðstöfunar og ónýtt heimild frá fyrra ári var 22,4 ma.kr.
Ársskýrsla ráðherra 2022
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.