B.01 Þrífösun og jarðstrengjavæðing
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Erla Sigríður Gestsdóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected]
Fréttir
27.01.22 Í vinnslu og á áætlun. Árið 2019 kynnti iðnaðarráðherra þriggja ára átak til að hraða þrífösun rafmagns. Skaftárhreppur og Mýrar verða þar í forgangi og hefur þegar verið hafist handa. Átakið hefur beina skírskotun til byggðaáætlunar. Í fjármálaáætlun 2021-2025 er gert ráð fyrir að 500 m.kr. verði varið úr ríkissjóði í að flýta fyrir jarðstrengjavæðingu og þrífösun dreifikerfis raforku. Er það í samræmi við tillögur átakshóps ríkisstjórnarinnar um úrbætur í innviðum sem kynntar voru fyrr á árinu í kjölfar fárviðrisins sem gekk yfir landið síðasta vetur. Á þessu ári var 100 m.kr. varið úr ríkissjóði í verkefnið og er það hafið. Miðað er við að árið 2022 verði fjárveiting ríkis 200 m.kr. og 100 m.kr. á ári næstu tvö ár á eftir, eða alls 500 m.kr.
18.12.20 Árið 2019 kynnti iðnaðarráðherra þriggja ára átak til að hraða þrífösun rafmagns. Skaftárhreppur og Mýrar verða þar í forgangi og hefur þegar verið hafist handa. Átakið hefur beina skírskotun til byggðaáætlunar. Í fjármálaáætlun 2021-2025 er gert ráð fyrir að 500 m.kr. verði varið úr ríkissjóði í að flýta fyrir jarðstrengjavæðingu og þrífösun dreifikerfis raforku. Er það í samræmi við tillögur átakshóps ríkisstjórnarinnar um úrbætur í innviðum sem kynntar voru fyrr á árinu í kjölfar fárviðrisins sem gekk yfir landið síðasta vetur. Á þessu ári var 100 m.kr. varið úr ríkissjóði í verkefnið og er það þegar hafið. Miðað er við að árið 2022 verði fjárveiting ríkisins 200 m.kr. og 100 m.kr. á ári næstu tvö ár á eftir, eða samtals 500 m.kr.
13.11.20 Greining á regluverki og fyrirkomulagi er varðar flutning og dreifingu raforku.
02.10.20 Aukin framlög til jöfnunar dreifikostnaðar raforku, þrífösunar og úrbóta á varaafli.
5.4.19 Skýrsla starfshóps varðandi raforkuflutning í dreifbýli og þrífösun rafmagns
30.01.19 Þrífösun rafmagns verði flýtt – Skaftárhreppur og Mýrar í fyrsta áfanga
Verkefnið
Markmið: Að afhendingaröryggi raforku verði aukið, aðgengi að áreiðanlegri orku á lands¬vísu jafnað, búsetuskilyrði bætt og atvinnutækifæri efld.
Stutt lýsing: Haldið verði áfram jarðstrengjavæðingu dreifikerfis raforku og samhliða verði það þrífasa. Einnig verði unnið að einföldun regluverks varðandi framkvæmdir í flutnings- og dreifikerfi raforku. Aðgerðin verði unnin í samræmi við fimm ára fjármálaáætlun 2021–2025 þar sem gert er ráð fyrir 600 millj. kr. framlagi úr ríkissjóði í sérstakt átak til að ljúka þrífösun og jarðstrengjavæðingu þjóðhagslega mikilvægs hluta dreifikerfis raforku að mestu leyti fyrir árið 2025.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Rarik og Orkubú Vestfjarða.
- Dæmi um samstarfsaðila: Orkustofnun og landshlutasamtök sveitarfélaga.
- Tímabil: 2022–2025.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Orkustefna, nýsköpunarstefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 7 og 11, einkum undir¬markmið 7.1 og 11.a.
- Tillaga að fjármögnun: 275 millj. kr. úr byggðaáætlun.