Starfshópur um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks
Hlutverk hópsins er að yfirfara og leggja til breytingar á fyrirkomulagi, löggjöf og öðru sem þurfa þykir til að stuðningur við afreksíþróttafólk hér á landi verði í fremstu röð. Hópnum er falið að skoða sérstaklega kostnaðarþátttöku í landsliðsstarfi.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
- Vésteinn Hafsteinsson, formaður, án tilnefningar
- Örvar Ólafsson, án tilnefningar
- Áslaug Magnúsdóttir, án tilnefningar
- Steinþór Einarsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Erlingur Jóhannsson, tilnefndur af íþróttanefnd
- María Sæm Bjarkadóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti
- Eva Margrét Kristinsdóttir, tilnefnd af félags- og vinnumarkaðsráðuneyti
- Knútur G. Hauksson, tilnefndur af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands
- Kristín Birna Ólafsdóttir, tilnefnd af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands
- Guðmunda Ólafsdóttir, tilnefnd af Ungmennafélagi Íslands
Mælst er til þess að starfshópurinn ljúki störfum og skili ráðherra tillögum að breytingum eigi síðar en 1. september 2023.